Brandari dagsins

Einu sinni voru tveir menn á kaffihúsi á Íslandi, Normaður og Íslendingur.Íslendingurinn var að borða á kaffihúsinu. Hann var að borða brauð með ávaxtasultu og Normaðurinn var með tyggjó.

Þá labbaði Normaðurinn að Íslendinginum og spurði: "Borðar þú skorpurnar á brauðinu"?

-Íslendingurinn: "Já auðvitað. Af hverju spyrðu að þessu".

-Normaðurinn: "Ekki við í Noregi. Við sendum þær í endurvinnslu og búum til brauð úr þeim og sendum til Íslands".

Eftir dálitla stund kom Normaðurinn aftur og spurði:

"Hvað gerir þú við híðið af ávöxtunum þegar þú borðar ávöxt".

-Íslendingurinn: "Auðvitað hendum við því í ruslið".

-Normaðurinn: "Ekki við. Við sendum það í endurvinnslu og búum til ávaxtasultu úr því og sendum hana til Íslands".

Nú var Íslendingnum nóg boðið og sagði:

"Hvað gerir þú við smokkana þegar þú ert búinn að nota þá"?

-Normaðurinn:"Auðvitað hendum við þeim í ruslið".-

Íslendingurinn:

"Ekki við. Við sendum þá í endurvinnslu og búum til tyggjó úr þeim og

sendum til Noregs". 

 Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Hér með er ég hætt að tyggja "norskt" tyggjó

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 18.10.2007 kl. 18:09

2 Smámynd: Guðný GG

gargandi snilld núna frussaði ég á skjáinn ,svooo sammála

Guðný GG, 18.10.2007 kl. 18:24

3 Smámynd: Fríða Eyland

besti í dag

Fríða Eyland, 18.10.2007 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband