19.10.2007 | 13:45
Í alvöru stelpur er eitthvað til í þessu ??
Kona ein var að steikja egg handa sínum heittelskaða eiginmanni. Allt í einu ryðst bóndinn inn í eldhúsið.
"Varlega VARLEGA ...! Settu meira smjör!Guð hjálpi mér...! Þú ert að steikja of mörg egg í einu.
OF MÖRG! Snúðu þeim! SNÚÐU ÞEIM NÚNA!"
"Við þurfum meira Smjör. Guð minn góður! VIÐ ÞURFUM MEIRA SMJÖR!
Eggin munu festast!" "Varlega...VARLEGA! Ég sagði VARLEGA!
Þú hlustar aldrei á mig þegar þú eldar! ALDREI! Snúðu þeim! Drífðu þig! Ertu geggjuð!
Ertu búin að tapa glórunni? EKKI gleyma að salta eggin.
Þú gleymir alltaf að salta. Nota salt.
NOTA SALT! S A L T!"
Konan horfði á hann og sagði.
"Hvað er eiginlega að þér? Heldur þú virkilega að ég kunni ekki að steikja tvö egg?"
Eiginmaðurinn svaraði rólega,
.
.
.
"Mig langaði bara að leyfa þér að finna hvernig mér líður þegar ég er með þig í bílnum."...
Athugasemdir
híhí jú ég held að í mörgum tilvikum geti eitthvað verið til í þessu en sem betur fer slepp ég við svona "aukakokk" í eldhúsinu þar sem ég er ekki "aukabílstjóri" í bílnum
Huld S. Ringsted, 19.10.2007 kl. 19:28
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 19.10.2007 kl. 22:46
held að það sé annar á mínu heimili sem meira af þessum
Fríða Eyland, 20.10.2007 kl. 05:00
ég kannast alveg við þetta
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.10.2007 kl. 12:46
hahahahahahahahahahahahahahahahhaha
Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.10.2007 kl. 19:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.